LEIÐBEININGAR VEGNA UMSÓKNA UM GREIÐSLUÞÁTTTÖKU Í BRJÓSTAMINNKUN
ATHUGIÐ - besta skref núna ef þið viljið fá niðurgreidda brjóstaminnkun (þetta er skrifað Apríl 2025) er að fara til heimilisæknis (gott að taka útprentuð skjöl eða link á þessa síðu (indianaros.is/brjostaminnkun) - biðja heimilislækni um að sækja um brjóstaminnkun hjá landspítalanum
(Hef heyrt (óstaðfest) að sjúkratryggingar íslands ætli að gera samning við aðila utan landspítalans til þess að vinna niður biðlista í brjóstaminnkun sem hefur myndast - áður hafði ég heyrt að það voru 2-3 ár á þeim biðlista)
ENDILEGA SENDIÐ MÉR Á INSTAGRAM (@INDIANAROS6) EF ÞAÐ ERU EINHVERJIR HLEKKIR SEM VIRKA EKKI :)
Ég hafði fengið misvísandi upplýsingar víðsvegar á netinu, frá læknum og í umræðum um hvaða skilyrði væru til að fá greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í brjóstaminnkun svo ég lagðist sjálf yfir þetta til að finna hvað í þessu væri rétt og hvernig ég ætti að sækja um greiðsluþátttöku. Athugið að sumir læknar telja að það þurfi að vera í kjörþyngd skv. BMI til að fá greiðsluþátttöku sjúkratrygginga en það er ekki rétt. Spítalinn setur sínar eigin reglur og þar skilst mér að þau setji kröfu varðandi kjörþyngd. Eftirfarandi upplýsingar varðandi brjóstaminnkun á ekki við aðgerðir landspítalanum heldur hjá sérgreinalæknum sem eru með samning við sjúkratryggingar t.d á Klínikinni og öðrum stofum.
Þessar upplýsingar eru skrifaðar 5. Ágúst 2023 og fékk ég samþykkt greiðsluþátttöku hjá Sjúkratryggingum.
ATH !! Það þarf að sækja um undanþágu ÁÐUR en aðgerðin er!
- Getur tekið tíma, þau funda 1-2x í mánuði svo best er að byrja þetta að minnsta kosti 2 mánuðum áður en aðgerðin er!
Þú þarft ekki að vera í kjörþyngd skv. BMI stuðli til að fá greiðsluþátttöku. Greiðsluþátttaka byggir á Schnur skalanum og notar sá skali hlutfall af þinni þyngd og hæð til að segja hversu mikið þarf að taka af brjóstunum þínum til þess að fá greiðsluþátttöku.
Úr reglugerð (sjá hér) um lýtalækningar sem sjúkratryggingar taka til, skilyrði (Sjá fylgiskjal, bls 6 / nr. 40), til greiðsluþátttöku v. brjóstaminnkunar.
Bæði brjóst hjá fullþroska konu eru stór og þung og valda alvarlegri skerðingu á líkamsfærni. Skilyrði er að einkenni hafi ekki svarað íhaldssamri meðferð s.s. viðeigandi brjóstahöldum, megrun, æfingum eða lyfja- meðferð. Einkenni sem geta verið afleiðing stórra brjósta eru m.a.:
a) Endurteknar eða viðvarandi sýkingar, kýli, exem og sáramyndun undir brjóstum.
b) Viðvarandi verkir í hálsi, herðum eða öxlum.
c) Viðvarandi óeðlileg líkamsstaða og bak verkir með takmörkun á líkamsfærni.
d) Viðvarandi náladoði, verkir eða máttleysi í handlegg vegna þrýstings á taugar eða æðar.
e) Renna eða sár í sjalvöðva undan brjósta höldum.
Í öllum tilvikum skal læknir áætla hvað fjarlægja þurfi mikinn brjóstavef (ekki fituvef) úr hvoru brjósti og skal ákvörðun umhvort aðgerð falli undir sjúkratryggingar byggð á þeirri áætlun að teknu tilliti til líkamsyfirborðs viðkomandi. Nota ber Schnur sliding scale.
Ef þessi einkenni eiga við þig og þú vilt gera tilraun til að sækja um greiðsluþátttöku eru þetta skrefin
Skref 1: Reikna út hvað Body Surface Area hjá þér er:
Ýttu hér til að opna reiknivélina : Það er hægt að breyta í CM og KG
Dæmi - manneskja sem er 180 cm og 110 KG fær það að það þurfi að taka 1050 grömm af brjóstum til þess að fá greiðsluþáttöku
Skref 3: Bóka tíma hjá heimilslækni og lýtalækni- sjá skjöl neðst
(ATH- þegar ég skrifaði þetta fór ég til lýtalæknis og heimilsæknis því þá var hægt að sækja um niðurgreiðslu hjá lýtalæknum út í bæ, ef þú ferð á landspítalann þá ferðu ekki til lýtalæknis líka. Ef þig langar að fara til lýtalæknis utan landspítalans, þá þarftu að komast að því fyrst og spurja lækninn hvort hægt sé að fara í brjóstaminnkun hjá þeim sem er niðurgreidd af sjúkratryggingum. )
Ég þekki sjálf ekki ferlið hvernig það er ef maður fer ekki til lýtalæknis líka, en ef einhver hefur reynslu á því og vill deila ferlinu get ég bætt því hingað inn - sendið mér endilega línu á instagram;) - Veit þar af leiðandi ekki hvort það þarf að sækja sjálf um niðurgreiðslu hjá sjúkratryggingum, mitt gisk er að heimilislæknirinn geri það - hef samt hér að neðan leiðbeiningarnar eins og ég gerði þetta til öryggis þar til ég fæ þá mögulega sent betri upplýsingar:)
Skiptir ekki máli hvor gerir fyrst, ég fór fyrst til heimils og svo lýtalæknis.
Hjá heimilslækni - segir að þú sért að fara sækja um greiðsluþátttöku hjá Sjúkratryggingum og mætir með þetta blað útprentað fyrir lækninn að fylla inn:
Gott að hafa þessa ICD kóða sem eru í þessu skjali til að sýna þeim (Blaðsíða 3):
Hjá lýtalækni
skjalið sem þú mætir með til lýtalæknis fyllir þú sjálf út og skilar sjálf inn til sjúkratrygginga. Gott að hafa skjalið með til lýtalæknisins.
Segir lækninum þú ætlar að reyna sækja um greiðsluþáttöku. Spurðu hvað lýtalæknirinn áætli að þurfi að taka mikið af brjóstunum. Þau vita oft ekki nákvæmlega fyrir aðgerð hversu mörg grömm eru tekin heldur áætla þau, t.d helmingur af þyngd brjóstanna. Fáðu þá upplýsingar um hversu þung brjóstin eru. Ef við höldum áfram með dæmið hér að ofan (628gr af hvoru brjósti) - Ef lýtalæknir segir, það er sirka helmingur tekinn og brjóstinn eru um 1400gr hvort. Það þýðir að það eru ca. 700gr tekin af hvoru, sem eru að sjálfsögðu meir en þessi 628 gr og ættir þú því að uppfylla skilyrðið varðandi hversu mikinn brjóstvef þarf að fjarlæga.
Hvaða upplýsingar þú þarft frá lýtalækni til að fylla út skjalið.
- Hvenær er meðferð áætluð?
- læknisnúmer lýtalæknis
- Númer meðferðar : nr 40 ( héðan kemur nr 40 (Sjá fylgiskjal, bls 6 / nr. 40)
- Tegund meðferðar : Brjóstaminnkun
- Nánari upplýsingar: Hér skrifaru frá lýtalækni hvað hvert brjóst er ca. stórt og hvað er ca. tekið af þeim
Hér skrifaru líka áætlaða þyngd á aðgerðardegi og hæð (Upp á Schnur skalann)
Dæmi: Brjóstin eru um 1400 gr. tekið ca. helmingur af hvoru.
- Jafnvel byðja lækninn um að prenta út læknabréfið, þar sem hann er að punkta þetta niður hjá sér og láta fylgja með umsókninni.
-
Heimilislæknir skjal
-
Umsókn undanþágu - gott að taka með til lýtalæknis til að sjá hvort þú sert með allt!
Ef þú telur þig eiga rétt á greiðlsuþátttöku eftir þennan lestur og upplýsingar frá heimilis/heilsugæslulækni og lýtalækni þá ferð þú inn á Sjúkra.is, skráir þig inn í réttindagátt. Á vinstri hlið stendur senda skjöl til SÍ, ýtir á það og svo undir rafræn skil á skrá setur inn umsókninar þínar. Ég notaði símann minn til að skanna inn skjölin (Notaði notes í Iphone til að skanna).
Sjúkratryggingar gefa sér 1-3 vikur til að fara yfir umsóknina og veita svar (Sjá hér undir læknareikningar).

