top of page

NÁMSKEIÐ

Smokk.jpg

„EN HVAÐ HEFUR ÞÚ SOFIÐ HJÁ MÖRGUM?“

Hvar: Hlöðunni, Gufunesbæ

Klukkan: 8:30 - 15:30

Hvenær: Mánudaginn 6. Nóvember

Verð: 24.900

Innifalið: Kaffi, drykkir, snarl, léttar veitingar og hádegismatur.

Öll gögn sem við notum á námskeiðinu. Þátttakendur fá skírteni að námskeiði loknu.

Takmörkuð pláss í boði.


Hægt er að fá kvittun fyrir stéttarfélagið.

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar öllum þeim sem starfa í félagsmiðstöðvum, bæði stjórendum og öðru starfsfólki, sem vilja bæta þekkingu sína og auka sjálfstraustið í að ræða og fræða ungmennin sem leita í starfið um kynlíf og kynheilbrigði. Með því byggjum við upp traust svo ungmennin vita að þeim er mætt með virðingu og eru örugg um að vita um trausta aðila til að leita til með allar þeirra pælingar og áhyggjur sem fylgir því að vera kynvera.


Um hvað:

Í námskeiðinu förum við í upprifjun á kynfræðslu og hinseginleikanum, fjöllum um öruggari kynlíf og kynheilbrigði, kynhegðun unglinga og hvað er eðlilegt eftir þeim aldri, og hvenær er merki um að þurfi að grípa inn í, með fræðslu eða öðrum hætti.


Þá skoðum við um hvernig við getum komið kynfræðslu með markvissari hætti inn í starfið okkar, bæði á formlegan og óformlegan máta. Hvernig við bregðumst við upplýsingum um kynferðislegt ofbeldi og hverjar eru vísbendingar um að ofbeldi hafi átt sér stað. Að sjálfsögðu förum við svo yfir hvernig við svörum spurningum um kynlíf, til dæmis þegar unglingarnir spurja okkur „En hvað hefur þú sofið hjá mörgum?“.

Hver er Indíana Rós?

Ég er sjálfstætt starfandi kynfræðingur með M.Ed í kynfræði frá Widener University í Bandaríkjunum og B.Sc frá Háskólanum í Reykjavík. Ég hef verið með kynfræðslur víðsvegar um landið, fyrir alls kyns hópa frá árinu 2016, bæði fyrir nemendur í grunn-, framhalds-, og háskóla en einnig fyrir foreldra og ýmisskonar fagfólk.


Fræðslan er fagleg og traust, með húmor og virðingu að þátttakendum að leiðarljósi.

Umsögn um námskeiðið:

„Indíana kom og var með okkur, starfsfólki félagsmiðstöðva Múlaþings, heilan dag. Hún var mjög fagleg, skipulögð og skemmtileg og fór bæði með okkur í ákveðna upprifjun og svo dýpra til að styrkja okkar eigin fræðslu. Indíana veit greinilega hvað hún er að gera og gerir það vel.„ - Bylgja Borgþórsdóttir, Íþrótta- og Æskulýðsstjóri Múlaþings

bottom of page